Hveravellir eru við Kjalveg, vegur nr 35 sem liggur yfir miðhálendi Íslands. Frá Gullfossi eru 92km að Hveravöllum og frá Blönduósi eru 112km að hvravöllum. Á sumrin koma áætlunarbílar daglega á Hveravelli, kemur einn frá Reykjavík og annar frá Akureyri. þessar ferðir eru á vegum S.B.A. Kjalvegur er fær flestum bílum á sumrin en er þó oft seinfarinn og er ekki hægt að mæla með honum fyrir mjög lága bíla.